
Fréttir af nýjum höfuðstöðvum Landsbankans við Austurhöfn við Reykjavíkurhöfn hafa vakið mikla athygli. Gert er ráð fyrir að nýjar höfuðstöðvar verði 16.500 fermetrar að stærð og byggingin mun hýsa alla miðlæga starfsemi bankans.
En hvað á að gera við húsið sem hýsir höfuðstöðvar bankans í Austurstræti í dag? Samkvæmt fréttaskýringu mbl.is um málið verður kallað eftir hugmyndum um nýtingu á húsinu.
Nútíminn hefur tekið saman eigin tillögur sem hljóta að koma sterklega til greina.
Dunkin Donuts með glæsilegasta kaffihús landsins
Til stendur að opna 16 Dunkin Donuts-staði á Íslandi á næstu árum. Einhverjir staðir verða inni í verslunum 10-11 en fyrsti staðurinn sem opnar verður á Laugavegi.
Dunkin Donuts við Austurstræti yrði ekki aðeins stærsta kaffihús landsins heldur einnig það glæsilegasta. Þrjár hæðir af gómsætum kleinuhringjum og sjóðandi heitu kaffi!
Lundabúð með lundabrúður á sprenghlægilegu tilboði
Lundabúðirnar spretta upp eins og gorkúlur í miðbænum. The Puff Puff Puffin gæti markað einhvers konar tímamót. Þarna væri hægt að selja miklu fleiri lundabrúður en annars staðar. Í staðinn fyrir 3 fyrir 2 tilboð væri hægt að hafa það 5 fyrir 2 eða, bíðið hæg, 6 fyrir 2!
McDonalds aftur í Austurstræti með látum
Við viðurkennum það. Við erum búin að sakna McDonalds. Sérstaklega staðarins í Austurstræti. Hamborgararisinn gæti mætt aftur til landsins með látum og opnað stærsta hamborgarastað landsins.
Bónus gæti opnað lágvöruverðsparadís
Ef einhver verslunarkeðja myndi ráða við að reka verslun í þessu húsnæði þá væri það Bónus. Þarna væri hægt að setja upp svakalegustu Bónusverslun landsins á þremur hæðum. Kælirinn gæti verið á efstu hæð og rúllustigi milli hæða. Sannkölluð lágvöruverðsparadís.
Vínbúð sem kæmi fyrir kæli
Nokkur ár eru síðan Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson þáverandi borgarstjóri lét taka bjórkælinn í Austurstræti úr sambandi. Hann hefur aldrei farið í samband aftur og það má því gera ráð fyrir að það sé hreinlega ekki pláss fyrir hann.
Frumvarp um sölu á áfengi í matvöruverslunum hefur ekki verið tekið fyrir. Ríkið gæti því snúið vörn í sókn, opnað risavaxna vínbúð með heilli hæð af ísköldum bjór.
Skemmtistaðurinn Bankinn
Bankinn gæti verið svakalegasti klúbbur í Evrópu. Þrjár hæðir af dúndrandi danstónlist, engar áhyggjur af hávaðatakmörkunum og nóg pláss fyrir fimm í fötu, plötusnúða og stórkostlega klósettaðstöðu.
Þessi frétt Sex tillögur um hvernig á að nýta Landsbankahúsið þegar bankinn flytur að Hörpunni birtist fyrst á Nútíminn.