Quantcast
Channel: Nútíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8004

Gunnar Nelson fékk átta milljónir frá UFC fyrir bardagann

$
0
0

Gunnar Nelson þénaði 58 þúsund dali fyrir bardagann á laugardaginn. Það eru um átta milljónir íslenskar krónur. Andstæðingur Gunnars, Bandaríkjamaðurinn Brandon Thatch, þénaði 22 þúsund dali.

Sjá einnig: Gunnar Nelson var týpískur Gunnar Nelson á blaðamannafundinum eftir bardagann

Gunnar fékk 29 þúsund dali fyrir bardagann og annað eins í bónus fyrir sigurinn. Þetta kemur fram á vefsíðunni Sherdog.com.

Írinn Conor McGregor og andstæðingur hans, Bandaríkjamaðurinn Chad Mendes, voru launakóngar kvöldsins. Þeir þénuðu hvor um sig 500.000 dali, eða um 67 milljónir íslenskra króna.

Þetta var fyrsti bardagi Gunnars á árinu en búast má við að hann berjist á ný í október.

 
Source: Nútíminn

Þessi frétt Gunnar Nelson fékk átta milljónir frá UFC fyrir bardagann birtist fyrst á Nútíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8004