Quantcast
Channel: Nútíminn
Viewing all 8004 articles
Browse latest View live

Sjáðu alla strákana í nýju myndbandi frá Emmsjé Gauta

$
0
0

Rapparinn Emmsjé Gauti hefur sent frá sér myndband við lagið Strákarnir. Magnús Leifsson leikstýrði myndbandinu en hann leikstýrði einnig t.d. myndbandinu frábæra við lagið Brennum allt með Úlfi Úlfi.

Eins og titillinn á lagi Emmsjé Gauta gefur til kynna er fullt af strákum í myndbandinu. Sjálfur er Gauti afar ferskur.

pj5si

Við hittum Gísla Pálma (og Michael Jordan)

pj5ys

Strákarnir í Agent Fresco líta við

pj6d1

Sturla Atlas mætir á svæðið

pj5wa

Gauti fær far með Arnari í Úlfi Úlfi

pj5u7

Og Retro Stefson-bræðurnir mæta á svæðið

pj5t9

Og fleiri og fleiri. Sjáðu myndbandið hér fyrir neðan.

 
Source: Nútíminn

Þessi frétt Sjáðu alla strákana í nýju myndbandi frá Emmsjé Gauta birtist fyrst á Nútíminn.


Er kynjakvótinn geðveiki?

Nýjasta flík 66° norður falin á svölum stað: Fólk mætir í verslanir og þylur upp leyniorð

$
0
0

„Á leynilegum stað á höfuðborgarsvæðinu er mjög svalur staður og þar höfum við falið nýjustu flík okkar, Hvannadalshnjúk. Ef þú finnur hana máttu eiga hana!“

Svona hljóma skilaboð frá 66° norður til viðskiptavina sinna og aðdáenda.

66° norður er með ratleik í gangi á Facebook-síðu sinni en þar birtast vísbendingar hvar á höfuðborgarsvæðinu nýjasta flík fyrirtækisins er falin.

Um er að ræða skel sem er hönnuð sérstaklega til að mæta þörfum björgunarsveitanna og er nefnd Hvannadalshnjúkur, í höfuðið á hæsta tindi landsins.

Samkvæmt tölvupósti sem sendur var á starfsfólk í verslunum 66° norður og Nútíminn hefur undir höndum hefur borið á því að fólk mæti í búðirnir og segist vera með leyniorð sem á að virka sem vísbending í ratleiknum.

Starfsfólki búðanna er bent á að það eina í stöðunni sé að segjast ekkert geta sagt.

Vísbendingarnar sem eiga eftir að koma munu útskýra þetta og viðkomandi þurfi því að bíða eftir þeim. Leikurinn er vissulega erfiður en hann á líka að vera það.

Ratleikurinn er ansi snúinn.

Í gær birtist til að mynda talnaruna sem notandi á Facebook komst að því að stóðu fyrir símanúmer sem hann hringdi í. Hann náði hins vegar engu samhengi úr orðunum sem lesin voru upp af sjálfvirkum símsvara.

Í dag birtist önnur vísbending sem er jafnvel snúnari. Vísbendingarnar má sjá hér.

 

 
Source: Nútíminn

Þessi frétt Nýjasta flík 66° norður falin á svölum stað: Fólk mætir í verslanir og þylur upp leyniorð birtist fyrst á Nútíminn.

Bölvun smokksins

$
0
0

Smokkurinn er hraðahindrun í kynlífi. Þegar fólk er búið að kyssa, sleikja, rúnka og byrjað að klístrast saman af frygð er komið að því að hinkra, opna umbúðir og klæða eineygða tvíburabróðurinn í kæfandi latexbúning svo hann valdi hvorki sér né öðrum skaða. Hann heldur svo sína leið. Sumir bílar komast reyndar ekki yfir hraðahindranir, en þeir eru yfirleitt hraðskreiðir sportbílar (ef þið vitið hvað ég meina).

Sumir hafa ekki kunnáttuna. Í góðum Seinfeld-þætti barðist George Costanza við umbúðirnar á meðan kærastan hvatti hann til dáða. Hún sagði honum að rífa, en hann þráaðist við og reyndi að opna umbúðirnar eins og poka af kartöfluflögum. Þegar það tókst var búið að hengja hvíta fánann utan um vininn (ef þið vitið hvað ég meina).

Svo eru sumir sem nenna ekki. Það er glatað viðhorf í 317.900 manna samfélagi, enda nógu erfitt að forðast sifjaspell á þessu skeri þar sem við erum nánast öll undan sama fólkinu sem reið hvert öðru milli þess sem það hjó frændr sína og bræðr. Þess vegna er ömurlegt að kynsjúkdómar dreifist vegna leti. Leti er reyndar rót margra vandamála; samfélags- og líkamlegra og á enga samleið með kynlífi, sem á að vera tápmikið og lostafullt.

Sóttvarnarlæknir hefur áhyggjur af því að smokkaskattur sé of hár og heilbrigðisráðherra segir beiðni frá Sóttvarnaráði liggja fyrir um aðgang ungs fólks að ókeypis smokkum. Smokkar mættu vera ókeypis frekar en margt annað, en ég held að það sé eitthvað annað en verðið sem veldur því að ungmenni kæri sig ekki um að nota þá.

Pakki með tólf smokkum kostar í kringum 1.500 kall. Samkvæmt því er fórnarkostnaður hverrar umferðar af kynlífi 125 krónur. Þessi 1.500 kall er jafnvirði einnar bíóferðar. Eða tæpra átta lítra af bensíni. Eða einnar hamborgaramáltíðar. Playboy-blað Ásdísar Ránar kostar meira en 1.500 kall. Ég geri mér grein fyrir því að hormónasturlaður unglingur getur farið fleiri en tólf umferðir í klósettrúlluna yfir blaði sem er fullt af berum konum, en hugsanlega á hann eftir að komast að því að lófinn er aumur staðgengill samneytis við aðra manneskju.

Lífseigustu rökin fyrir því að smokkurinn sé bölvun er tilfinningin. Að ríða berbakt er allt annað en að ríða með hnakk. Hnakkurinn veitir öryggistilfinningu á meðan hitt veitir óheft frelsi. Það meikar samt engan sens að hoppa upp á næstu hryssu sem maður sér og ríða henni berbakt. Maður hefur hnakkinn undir sér þar til gagnkvæmt traust myndast (ef þið vitið hvað ég meina).

Þessi pistill birtist í Fréttablaðinu fyrir fimm árum en á enn vel við í dag.

 
Source: Nútíminn

Þessi frétt Bölvun smokksins birtist fyrst á Nútíminn.

Kona lætur karlana heyra það

$
0
0

Carly Simon gaf út lag sitt, You’re So Vain, árið 1972. “Hún er 27 ára þegar þetta lag kemur út en samt er þetta rosalegt uppgjör við fortíðina. Það er eins og hún hafi lifað margar ævir þó hún sé ekki eldri en þetta,” segir Bergur Ebbi í þessum nýjasta þætti Fílalags þar sem þessi adult contemporary negla er maukfíluð. “Þetta er women-empowerment. Hún er að jafna sökina við alla páfuglana sem hún hefur umgengist í gegnum tíðina. Þetta lag er ekki bara um einhvern einn náunga heldur alla ríku sjálfskipuðu playerana í lífi hennar. Og það sem er best er að það er ekki vottur af biturð í laginu heldur hrein og ómenguð sigurvíma,” bætir hann við.”

Þetta lag er náttúrulega frábær tónsmíð, snjall texti og góð útsetning en það sem stendur upp úr er hvorki versið né viðlagið heldur einmitt brúin þar á milli,” segir Snorri Helgason en við þetta má bæta að það er almennt viðurkennt innan lagahöfundabransans að brúin í You’re So Vain sé ein voldugasta og kraftmesta brú tónlistarsögunnar og ekki kemur það að sök þó hún spanni aðeins örfá taktbil. “Krafturinn sem losnar úr læðingi í þessari brú er einfaldlega show-business’ finest. Þetta er kraftur sem jafngildir Hendrix að kveikja í gítarnum sínum nema þetta er miklu fagmannlegra og látlausara,” bætir Snorri við til útskýringar.

Til að hlusta á 70s negluna You’re So Vain og hugmyndir Bergs Ebba og Snorra um hana skuluð þið smella hér:

Sjá einnig: Hvað er Alvarpið og hvernig hlusta ég?

 
Source: Nútíminn

Þessi frétt Kona lætur karlana heyra það birtist fyrst á Nútíminn.

Fréttamaður sagði rassabrandara í beinni útsendingu og fékk blendin viðbrögð

$
0
0

Fréttamaður á kanadísku fréttastofunni CKPG hefur slegið í gegn eftir að hann sagði rassabrandara í beinni útsendingu í vikunni.

Aileen Machell var að segja frá káli sem var ræktað í geimnum þegar íþróttafréttamaðurinn Rich Abney greip tækifærið og sagði brandara sem innihélt reikistjörnuna Úranus.

Það er óþarfi að þýða brandarann en augnablikið var stórkostlegt. Horfið á myndbandið hér fyrir neðan.

 
Source: Nútíminn

Þessi frétt Fréttamaður sagði rassabrandara í beinni útsendingu og fékk blendin viðbrögð birtist fyrst á Nútíminn.

Gunnar Nelson fékk Harley Davidson í afmælisgjöf frá forseta UFC og Conor McGregor

$
0
0

Gunnar Nelson fékk Harley Davidson-mótorhjól í afmælisgjöf frá Dana White, forseta UFC bardagasambandsins og bardagakappanum Conor McGregor.

Gunnar birti þessa mynd á Instagram þar sem hann þakkar fyrir sig.

Just got a Harley for my birthday!! Thanks so much @thenotoriousmma @danawhiteufc @ufc and @harleydavidson 😍

A photo posted by Gunnar Nelson (@gunninelson) on

Hann fékk hjólið afhent í gær en Nútíminn sagði fyrst frá gjöfinni í kjölfar síðasta bardaga hans.

Gunnar er staddur í Las Vegas þessa dagana og verður Conor McGregor, æfingarfélaga sínum og einni stærstu stjörnu UFC-bardagasamtakanna, innan handar í nýjustu þáttaröðinni af The Ultimate Fighter, sem er raunveruleikaþáttur þar sem upprennandi bardagamenn freista þess að fá samning hjá UFC.

Sjá einnig: Gunnar Nelson til Las Vegas á ný: Aðstoðar Conor McGregor í sjónvarpsþætti á Fox

Samkvæmt frétt á vef MMA frétta eru Conor McGregor og Urijah Faber þjálfarar í þáttunum sem verða frumsýndir á Fox Sports 1 í september.

Samkvæmt MMA fréttum standa tökurnar yfir í eina til tvær vikur og Gunnar aðstoðar McGregor að þjálfa lið Evrópumanna í þættinum. Bandaríkjamaðurinn Urijah Faber þjálfar lið Bandaríkjanna. Evrópskir og bandarískir bardagamenn berjast svo í þáttaröðinni.

 
Source: Nútíminn

Þessi frétt Gunnar Nelson fékk Harley Davidson í afmælisgjöf frá forseta UFC og Conor McGregor birtist fyrst á Nútíminn.

Sharon Stone fækkar fötum: Hefur engan áhuga á að líta út fyrir að vera tvítug

$
0
0

Leikkonan Sharon Stone situr nakin fyrir í septemberhefti tímaritsins Harper’s Bazaar. Eina sem hún „klæðist“ eru skartgripir frá Tiffany & Co. Myndir úr tímaritinu má sjá hér fyrir neðan.

Hin 57 ára gamla Stone segist í viðtali í tímaritinu ánægð með líkama sin og að hún hafi engan áhuga á að líta út fyrir að vera tvítug.

„Ég veit að rassinn á mér eins og poki af pönnukökum en ég er ekki að reyna að vera fallegasta kona heims,“ segir Stone kokhraust.

Á ákveðnum tímapunkti spurði ég sjálfa mig: „Hvað er kynþokafullt?“ Það er ekki staðsetning brjóstanna heldur að lifa í núinu, skemmta sér og kunna nógu vel við sjálfan þig til að kunna vel við manneskjuna sem þú ert með.

Loks sagðist Stone áður hafa trúað því að kynþokki væri að reyna að líta út eins og hún leit út í kvikmyndinni Basic Instinct.

„Þá ættum við öll erfiðan dag fyrir höndum,“ sagði hún létt.

55cdf3621700006e00567836 55cdf178170000b700567830

 

 
Source: Nútíminn

Þessi frétt Sharon Stone fækkar fötum: Hefur engan áhuga á að líta út fyrir að vera tvítug birtist fyrst á Nútíminn.


Ofurhugi steggjaður: Á fleygiferð niður Kambana á hlaupahjóli klæddur í g-streng

$
0
0

Vegfarendur á leiðinni niður Kambana í dag, á leiðinni í Hveragerði, tóku eftir fáklæddum ofurhuga á fleygiferð niður. Kappinn var aðeins klæddur í g-streng og með gasgrímu. Myndband af kappanum má sjá hér fyrir neðan.

Eftir því sem Nútíminn kemst næst var um steggjun að ræða þar sem rúta full af hlæjandi körlum beið hans þegar niður var komið.

Árvökull lesandi Nútímans sendi okkur þetta myndband sem sýnir að fólk sem trúði ekki sínum eigin augum í dag þarf ekki að láta athuga í sér sjónina.

Myndbandið má sjá hér fyrir neðan. Við getum að sjálfsögðu ekki mælt með því að nokkur leiki þetta eftir.

 
Source: Nútíminn

Þessi frétt Ofurhugi steggjaður: Á fleygiferð niður Kambana á hlaupahjóli klæddur í g-streng birtist fyrst á Nútíminn.

Þrjú skipti sem Gunnar Bragi kom okkur á óvart

$
0
0

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra hefur komið okkur nokkrum sinnum á óvart undanfarið. Nútíminn tók saman þrjú skipti sem standa upp úr.

 

1. Þegar hann lét útgerðarmenn heyra það

gunnar2

Gunnar Bragi sagði í útvarpsþættinum Sprengisandi á Bylgjunni að það væri óheiðarlegt hvernig sumir útgerðarmenn hafa talað um ákvörðun Íslands um að styðja viðskiptaþvinganir gegn Rússum.

Hann sagði holan hljóm í því þegar útgerðarmenn tala um hag þjóðarinnar og gagnrýndi fullyrðingar útgerðarmanna um að 37 milljarðar séu í húfi þegar talan sé nærri tíu milljörðum. Þá kallaði hann eftir því að útgerðarmenn sýni samfélagslega ábyrgð.

2. Þegar hann sagði að það þyrfti að draga úr hvalveiðum

gunnar3

Gunnar Bragi sagði í viðtali á Bylgjunni mikilvægt að Íslendingar nái samstöðu um hvalveiðar. Þá sagði hann að það þyrfti að draga úr þeim því þær skaði ímynd íslensku þjóðarinnar á alþjóðlegum vettvangi.

„Ef við horfum á stóru myndina og vegum og metum okkar hagsmuni þá kann að vera að það sé mikilvægt fyrir okkur að ná einhvers konar samstöðu um þessar hvalveiðar okkar. Það kemur ekki til greina að gefa það eftir að við megum sækja hval, við megum veiða hval,” sagði hann.

3. Þegar hann hélt ráðstefnu um jafnrétti og Emma Watson vitnaði í hann

gunnar1

Á fjórða hundrað tóku þátt í jafnréttisráðstefnu sem Ísland og Súrínam stóðu að í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York í janúar. Hugmyndin var að virkja karla í baráttunni fyrir jafnrétti kynjanna.

Í opnunarávarpi sínu minnti Gunnar Bragi á, sem faðir fimm drengja, að væri það skylda sín að ala þá upp til að vera nytsamir og ábyrgðarfullir samfélagsþegnar.

„Forsenda heilbrigðs sambands karla og kvenna, hvort heldur sem vinir, vinnufélagar eða ættingjar, er að karlar geri sér grein fyrir hvað felist í því að vera karlmaður.“

 
Source: Nútíminn

Þessi frétt Þrjú skipti sem Gunnar Bragi kom okkur á óvart birtist fyrst á Nútíminn.

Dunkin’ Donuts eykur kaffisölu annarra kaffihúsa í miðbænum

$
0
0

Sala á kaffi hefur aukist í miðbænum eftir að Dunkin’ Donuts opnaði kaffihús sitt á Laugavegi. Þetta kemur fram í umfjöllun í sunnudagsblaði Morgunblaðsins.

Sól­rún Björk Guðmunds­dótt­ir, markaðsstjóri Kaffitárs, segir í Morgunblaðinu að kaffisala hafi aukist eftir að Dunkin’ Donuts opnaði.

„Kannski er þetta bara já­kvætt fyr­ir miðborg­ina, því að þarna er mögu­lega að koma fólk sem ann­ars kæmi ekki í bæ­inn,“ seg­ir hún.

Hall­dór Guðmunds­son, fram­kvæmda­stjóri kaffi­húsa hjá Te&kaffi, tek­ur í svipaðan streng í Morgunblaðinu.

Kaffi­hús­in okk­ar hafa reynd­ar sýnt mikla aukn­ingu á þessu tíma­bili þannig að við höf­um ekki fundið fyr­ir neinu tekjutapi. Við horf­um á alla sam­keppni já­kvæðum auk­um, þetta held­ur okk­ur á tán­um. Við ein­blín­um á gæði um­fram allt annað.

Árni Pét­ur Jónsson, framkvæmdastjóri Dunkin’ Donuts á Íslandi seg­ir í Morgunblaðinu aukn­ingu á kaffisölu hjá öðrum kaffi­hús­um í kjöl­far inn­komu Dunk­in’ Donuts ekki koma á óvart.

„Reynsl­an er­lend­is hef­ur sýnt að þegar Dunk­in’ Donuts opn­ar nýj­an stað eykst sala á svipuðum veit­ing­um á stöðunum í kring. Við höf­um náð að skapa stemn­ingu hér og þetta virðist bara vera gott fyr­ir miðbæ­inn, líka hin kaffi­hús­in,“ hann.

 
Source: Nútíminn

Þessi frétt Dunkin’ Donuts eykur kaffisölu annarra kaffihúsa í miðbænum birtist fyrst á Nútíminn.

Nýgift hjón laumuðu kossi inn í beina útsendingu í fréttunum á RÚV

$
0
0

Nýgiftu hjónin Helga Magnúsdóttir og Bergur Þorri Benjamínsson laumuðu kossi inn í kvöldfréttirnar á RÚV í kvöld. Myndband af kossinum má sjá hér fyrir neðan.

Helga og Bergur giftu sig í gær og í morgun kom Helga eiginmanni sínum á óvart með því að bjóða honum upp á Esju.

Þau eru bæði bundin við hjólastól en starfsfólk Öryggismiðstöðvarinnar, handboltafólk úr Fram og fleiri sjálfboðaliðar hjálpuðu þeim á toppinn í sérútbúnum hjólastólum.

Þegar fréttamaður RÚV lauk fréttinni laumuðu þau svo kossinum að. Ástin!

 
Source: Nútíminn

Þessi frétt Nýgift hjón laumuðu kossi inn í beina útsendingu í fréttunum á RÚV birtist fyrst á Nútíminn.

Tístarar gráta yfir Benjamín dúfu: „Undir engum kringumstæðum er þetta barnamynd“

$
0
0

Kvikmyndin Benjamín dúfa var á dagskrá Ríkissjónvarpssins í kvöld. Fólk á Twitter átti erfitt með að beisla tilfinningar sínar og lét þær gossa á samskiptamiðilinn skemmtilega.

Sjá einnig: Bandarísk endurgerð á Benjamín dúfu tekur á sig mynd

Nútíminn tók saman nokkur hreinskilin tíst sem lýsa eflaust tilfinningum þeirra sem eru svolítið litlir í sér í kvöld ansi vel. Það er í lagi að gráta. Gjörið svo vel.

 

Pistlahöfundurinn Hrafn Jónsson sló tóninn þegar myndin hófst

Og plötusnúðurinn Sunna Ben var á sömu línu

Og grátkórinn fylgdi í kjölfarið

Og hélt áfram yfir allri myndinni

Það voru ekki allir að horfa

 Góð spurning

 
Source: Nútíminn

Þessi frétt Tístarar gráta yfir Benjamín dúfu: „Undir engum kringumstæðum er þetta barnamynd“ birtist fyrst á Nútíminn.

Sjónvarpspredikarar sem féfletta fólk fá á baukinn frá John Oliver

$
0
0

Bandarískir sjónvarpspredikarar fengu á baukinn frá sjónvarpsmanninum John Oliver í þættinum Last Week Tonight í gærkvöldi. Stórkostleg innslag má sjá hér fyrir neðan.

Furðulega margir predikarar hafa keypt einkaþotur fyrir peninga frá fólki sem hefur trú á mætti þeirra. Oliver flettir ofan af þeim í innslaginu og notar húmor til að benda á fáránleikann.

Sjáðu innslagið hér fyrir neðan.

 
Source: Nútíminn

Þessi frétt Sjónvarpspredikarar sem féfletta fólk fá á baukinn frá John Oliver birtist fyrst á Nútíminn.

Hefnendurnir LXXIII – Þúsund andlit Tildu Swinton

$
0
0

Ofurhetjurnar ódrepandi rísa skeinulausir úr gröfinni til að ræða Súperman með sítt að aftan og muninn á Jackson og Depp áður en þeir gera aðra atlögu að Fantastic Four. Því við vorum ekki búnir að klára að ræða Fantastic Four. Not by a long shot.

Sjá einnig: Hvað er Alvarpið og hvernig hlusta ég?

Hlustaðu á þáttinn hér:

Hefnendurnir er nördahlaðvarp þar sem Hugleikur Dagsson og Jóhann Ævar Grímsson rýna í allt er viðkemur nördaheimum og benda á bangsanum hvar nördaheimar hafa komið við þá.

Eldri þætti Hefnenda má finna hér!

 
Source: Nútíminn

Þessi frétt Hefnendurnir LXXIII – Þúsund andlit Tildu Swinton birtist fyrst á Nútíminn.


Oscar Pistorius losnar úr fangelsi eftir að hafa afplánað tíu mánuði af fimm ára dómi

$
0
0

Spretthlauparinn Oscar Pistorius, sem var í fyrra dæmdur fyrir að hafa orðið unnustu sinni Reevu Steenkamp að bana, fær reynslulausn 21. ágúst. Hann hefur afplánað tíu mánuði af fimm ára dómi sínum.

„Hegðun hans hefur verið mjög góð,“ sagði Zach Modise, yfirmaður fangelsismála í Suður-Afríku við fjölmiðla í júní. Þá sagði hann að Pistorius myndi ekki afplána allan fimm ára dóminn.

Sjá einnig: Vissi að Oscar Pistorious væri að segja satt

Pistorius var dæmdur fyrir manndráp af gáleysi en gæti enn þá fengið dóm fyrir morð þar sem saksóknari hyggst áfrýja málinu til hæstaréttar í Suður-Afríku.

Oscar Pistorious skaut Reevu Steenkamp til bana í gegnum læsta baðherbergishurð 14. febrúar árið 2013. Hann hefur frá upphafi sagt að hann hafi talið sig vera að skjóta innbrotsþjóf.

 
Source: Nútíminn

Þessi frétt Oscar Pistorius losnar úr fangelsi eftir að hafa afplánað tíu mánuði af fimm ára dómi birtist fyrst á Nútíminn.

NBA-leikmaður segist vera að hitta Rihönnu: Rihanna segist aldrei hafa hitt hann

$
0
0

Vefmiðillinn TMZ greindi á dögunum frá því að Matt Barnes, leikmaður Memphis Grizzlies í NBA-deildinni, og söngkonan Rihanna hafi sést saman á nokkrum stefnumótum.

TMZ vísaði í heimildir tengdar Barnes og ræddi meira segja við Gloriu Govan, núverandi og bráðum fyrrverandi eiginkonu leikmannsins, um málið. Hún sagðist vera fylgjandi hamingjunni og að hún hefði ekkert á móti því að fá tónleikamiða frá „nýju kærustunni“ hans Barnes.

Í gær var Barnes svo spurður út í málið af ljósmyndara TMZ. Hann hélt ró sinni en sagði að það væri mögulega framtíð í sambandi þeirra og að fjarlægðin á milli þeirra væri ekki vesen þar sem hún er vellauðug.

Rihanna er vinkona mín en við sjáum hvað setur. Ég held að við séum komin yfir það að vera bara skotin í hvort öðru. Við erum komin örlítið lengra en það — bara örlítið.

Svo virðist sem Barnes hafi ekki bara verið að segja heimsbyggðinni fréttir heldur líka Rihönnu.

Hún notaði Instagram-síðu sína til að birta mynd af Barnes og dæla inn kassamerkjum sem bentu til þess að hann hafi ekki verið að segja sannleikann.

Myndina má sjá hér fyrir neðan en eins kassamerkin sýna þá segist Rihanna aldrei hafa hitt Barnes. Þá segir hún að orð hans særi og að þau séu hreinlega ærumeiðandi.

 
Source: Nútíminn

Þessi frétt NBA-leikmaður segist vera að hitta Rihönnu: Rihanna segist aldrei hafa hitt hann birtist fyrst á Nútíminn.

Hugleikur hitar upp fyrir Josh Blue

$
0
0

Grínistinn Josh Blue er væntanlegur til landsins og treður upp í Háskólabíói föstudagskvöldið 4. september. Hugleikur Dagsson hitar upp fyrir Blue ásamt Jóhannesi Inga, sem vann keppnina Fyndnasti nemandi Háskóla Íslands fyrr á árinu.

Blue stóð uppi sem sigurvegari í raunveruleikaþættinum Last Comic Standing á sjónvarpsstöðinni NBC árið 2006. Miðasala á uppistandið hefst klukkan 10 í fyrramálið á Miði.is.

Hann segist hafa tekið þátt í þættinum til að vekja athygli á því að fatlað fólk getur haft áhrif en hann er með CP hreyfihömlun og gerir mikið grín að sjálfum sér og viðhorfi fólks í uppistandinu.

Sjá einnig: RÚV gefur grænt ljós á aðra seríu af Hulla

Blue hefur undanfarið ferðast um heiminn og skemmt fólki og hefur meðal annars komið fram í þætti Ellenar Degeneres ásamt því að gefa út uppistandið Sticky Change á Netflix. Miði.is.

Josh Blue í miklu stuði á sviði.

Josh Blue talar einnig á ráðstefnunni Sköpun skiptir sköpum á Grand Hóteli. Ráðstefnan fjallar um aðgengi fatlaðs fólks að menningu og listum hér á landi.

 
Source: Nútíminn

Þessi frétt Hugleikur hitar upp fyrir Josh Blue birtist fyrst á Nútíminn.

Sjáðu Reykjavík og Ara Eldjárn í stiklunni fyrir grínþættina Documentary Now

$
0
0

Grínþáttaröðin Documentary Now verður frumsýnd á fimmtudaginn á sjónvarpsstöðinni IFC. Stiklu úr þáttaröðinni má sjá hér fyrir neðan. Einn þáttur var tekinn upp hér á landi.

Hópur bandarískra kvikmyndagerðarmanna kom til landsins í apríl og tók upp þátt með hópi íslenskra leikara. Ari Eldjárn, Saga Garðarsdóttir, Siggi Sigurjóns, Ágústa Eva Erlendsdóttir, Nína Dögg Filippusdóttir og Þorsteinn Guðmundsson eru á meðal þeirra sem fengu hlutverk í þáttunum.

Í stiklunni hér fyrir neðan má meðal annars sjá Ara Eldjárn í hlutverki sínu ásamt hópi fólks sem tók þátt í bæjarhátíð sem slegið var upp í Reykjavík í þættinum.

Bill Hader, Fred Armisen og Seth Meyers fara með aðalhlutverkin í þáttinum. Þeir eru þekktastir fyrir hlutverk sín í grínþáttunum Saturday Night Live en hafa einnig komið fram í kvikmyndum og þáttum á borð við Superbad, The Skeleton Twins, Portlandia ásamt því að Seth Meyers stýrir kvöldþættinum Late Night with Seth Meyers.

Lorne Michaels, framleiðandi Saturday Night Live, kemur að framleiðslu þáttanna.

Hér má sjá þátt í fullri lengd úr þáttaröðinni.

 
Source: Nútíminn

Þessi frétt Sjáðu Reykjavík og Ara Eldjárn í stiklunni fyrir grínþættina Documentary Now birtist fyrst á Nútíminn.

IKEA innkallar næturljós eftir að barn fékk rafstuð

$
0
0

IKEA hefur innkallað Patrull næturljós og hvetur viðskiptavini sína til að hætta notkun þess tafarlaust og skila því í verslunina. Í tilkynningu frá IKEA kemur fram að barn erlendis hafi fengið rafstuð úr ljósinu eftir að hafa fiktað í því.

Erlendis hefur IKEA borist ein tilkynning um barn sem fiktaði við ljósið í innstungunni með þeim afleiðingum að fremsti hluti þess datt af og barnið fékk rafstuð í fingur og sýnilega áverka.

Þá kemur fram að eftir slysið hafi ljósið tafarlaust verið tekið úr sölu.

„Ljósið hefur verið prófað og uppfyllir alla viðeigandi löggjöf og staðla. Í rannsókninni sem fylgdi í kjölfar tilkynningarinnar voru meira en 600 Patrull næturljós prófuð og reyndust þau öll í lagi. Þrátt fyrir þetta hefur IKEA ákveðið að innkalla ljósið til að koma í veg fyrir möguleg slys.“

Hægt er að skila næturljósinu í IKEA verslunina og fá það endurgreitt að fullu. Ekki er nauðsynlegt að sýna kvittun fyrir kaupum.

 
Source: Nútíminn

Þessi frétt IKEA innkallar næturljós eftir að barn fékk rafstuð birtist fyrst á Nútíminn.

Viewing all 8004 articles
Browse latest View live