Quantcast
Channel: Nútíminn
Viewing all 8004 articles
Browse latest View live

Níu óþolandi hlutir sem túristar gera á Íslandi: „Ég vil frekar að þú kúkir í garðinn hjá mér“

$
0
0

Túristar eru upp til hópa fínasta fólk, það er enginn að halda öðru fram. Það er hins vegar eins og margir þeirra haldi að Ísland sé bara þessi litla krúttlega eyja þar sem glæpatíðni er svo lág að það þurfi engin lög. Eins og allar reglur séu bara svona leiðbeinandi. Þetta eru nokkrir hlutir sem hinn almenni túristi á það til að gera og fara virkilega í taugarnar á mér. Ef einhver túristi er að lesa þetta má viðkomandi vinsamlegast bæta úr þessu hið snarasta.

Kúka út um allt

Fréttir af bændum að reka kúkandi túrista af túnum hjá sér eru allt of algengar. Í stóra samhenginu er þetta mjög fyndið og auðvitað gerast slysin, en ég ímynda mér að fátt sé meira pirrandi en að vakna við einhvern að drulla í garðinn þinn. Eins og það sé ekki nógu ógeðslegt að stíga í hundaskít?

Keyra utan vega

No brainer en þetta væri asnalegur listi ef þetta væri ekki á honum. Held að enginn geti verið ósammála þessu

Sjá einnig: Rússnesk samfélagsmiðlastjarna greiðir 450 þúsund króna sekt fyrir utanvegaaksturinn í Mývatnssveit

Stoppa á miðjum vegi til að skoða eitthvað

Eina atriðið hérna sem er beinlínis hættulegt, en líklega eitthvað sem flestir kannast við. Túristar hika ekki við að stoppa og taka mynd af því þeir sjá eitthvað krækiberjalyng 200 metra frá veginum. Þeim þykir alls ekki taka því að keyra út í kant, því líkurnar á því að það komi annar bíll á þessari litlu krúttlegu eyju finnst þeim hljóti að vera stjarnfræðilega litlar.

Kunna ekki að fara í sund

Það eru svona 30 skilti í Laugardalslaug sem útlista hvenær, hvað og hvernig þú átt að þrífa þig fyrir og eftir sund. Það er engin leið að gera skilaboðin skýrari. En þeir rétt pota hausnum undir bununa og fara svo valhoppandi beinustu leið í laugina, nýbúnir að kúka í garðinn hjá þér.

Kvarta yfir veðrinu

Það var enginn túristi sendur út í frímínútur í -10 stiga frosti og roki, í blautum stígvélum. Það ætti að láta þá skrifa undir eitthvað plagg í Leifsstöð sem bannar þeim að kvarta yfir veðrinu.

Kunna ekki á umferðarljós

Það er fátt aumkunarverðara en að sjá fólk bruna yfir á gulu og stoppa svo aftan við línuna hinum megin af því það er komið rautt ljós þar. Þetta er kannski ekki óþolandi, en mikið er það lúðalegt.

Bauna yfir mann á eigin tungumáli

Þetta er kannski meira bundið við túrista sem koma af skemmtiferðaskipum og vita varla hvar þeir eru, en það eru ótrúlega margir sem hika ekki við að bauna út úr sér heilu hljóðbókunum á þýsku/frönsku/ítölsku og fleiri tungumálum. Það er ekkert að því að kunna ekki ensku, en reyndu að minnsta kosti að tala hægt og skýrt svo þú endir ekki á því að þurfa að gera þarfir þínar beint á bryggjuna því þú finnur ekki klósett.

Segja manni að það búi jafn margir í hverfinu þeirra og á Íslandi

Þetta er mjög þreytt. Við Íslendingar hlöðum samt óspart í þessa „sturluðu staðreynd“ þegar við erum í útlöndum þannig að kannski ætti þetta að fara minna í taugarnar á mér.

Reyna að segja Eyjafjallajökull

Þú getur það ekki og það er ekki fyndið að þú getir það ekki. Ég vil frekar að þú kúkir í garðinn minn.

 
Source: Nútíminn

Aðdáendur Suits athugið! Framhaldsþáttaröð á leiðinni.

$
0
0

Pearson ný þáttaröð í framhaldi af hinum hrikalega vinsælu þáttum Suits kemur út í þessum mánuði. Gina Torres heldur áfram að fara með hlutverk sitt sem Jessica Pearson og nú sem aðalhlutverk þáttanna. Þáttaröðin mun fjalla um flutning hennar til Chicago þar sem hún reynir að komast inn í hinn pólitíska heim. Þættirnir koma út þann 17. júlí næstkomandi en það lítur út fyrir það að enginn af okkar uppáhalds karakterum úr upprunalegu þáttaseríunni Suits muni koma fram í þáttunum.

 
Source: Nútíminn

Hjaltalín gefur út lagið Love From 99: „Poppaðasta lag Hjaltalín í mörg ár“

$
0
0

Íslenska hljómsveitin Hjaltalín hefur gefið út lagið Love From 99. Upptökum á nýrri plötu sveitarinnar er nú lokið en lagið Love From 99 er sagt það poppaðasta sem kemur frá sveitinni í mörg ár.

Útgáfa lagsins er hluti af upptakti væntanlegrar breiðskífu sveitarinnar sem hófst í byrjun árs þegar sveitin gaf út lagið Baronesse. Platan hefur nú verið í vinnslu í nær fimm ár en upptökum er nú formlega lokið og hún komin í hljóðblöndun.

Í byrjun árs tilkynnti Hjaltalín einnig um tónleika í Eldborg, 7. september, en tónleikarnir verða þeir stærstu á ferli sveitarinnar. Miðasala hefur gengið framar vonum og því hefur verið ákveðið að bæta við tónleikum föstudaginn 6. september. Hefst miðasala á þá tónleika kl. 12 á hádegi í dag.

Í fréttatilkynningu segir um lagið Love From 99: „Love from ’99 er ljúfsár óður til fortíðarinnar, þar sem minningar kalla á þrá eftir framtíð sem varð ekki. Nú eru liðin 20 ár og hlutirnir fóru ekki eins og þeir áttu að fara, en hverjum er ekki sama? með partýið að vopni getur maður haldið áfram og hlegið að þessum gömlu upplifunum sem samt ristu svo djúpt.”

Lagið varð upprunalega til sem demó í lifandi flutningi hljómsveitarinnar í stúdíó Kolgeit, snemma á árinu 2014.  Eftir að grunnurinn var tekinn upp í Orgelsmiðjunni, þá leið þónokkur tími þar til söngur og texti í sinni fyrstu mynd var sunginn inn. Þvínæst maríneraði lagið með mörgum minni-og meiriháttar breytingum, nýum söngi og synthum, þar til upptökur kláruðust í maí sl í Stúdíó Sjampó. Síðan var lagið mixað í Ómstöðinni og masterað hjá Adda 800, en þessir 3 aðilar eru allir staðsettir í klasanum á Eyjarslóð 7. Þannig var lagið í um það bil 5 og hálft ár í vinnslu á 3 mismunandi stöðum.

Hlustaðu á lagið

 
Source: Nútíminn

Ferðamenn smökkuðu kranavatn á Keflavíkurflugvelli í stórskemmtilegu myndbandi

$
0
0

Í nýju myndbandi frá Inspired by Iceland er ferðamönnum á Keflavíkurflugvelli boðið upp á fjórar mismunandi tegundir af kranavatni. Barþjónninn Georg bauð uppá garðslöngukranavatn, baðvaskskranavatn, þvottahússkranavatn og bílskúrskranavatn.

Erlendir ferðamenn voru hrifnir af þessum framandi drykk sem kranavatn er og höfðu orð á því hve hressandi hann væri. Það kom flestum á óvart þegar það var útskýrt fyrir þeim hvað kranavatn þýddi í rauninni.

Ferðamenn eru hvattir til þess að draga úr plastnotkun og drekka kranavatn á ferð sinni um landið í markaðsherferð undir merkjum Inspired by Iceland í samstarfi við Umhverfisstofnun og hagaðila. Í herferðinni er lögð áhersla á að kynna íslenska vatnið sem lúxusvöru undir heitinu „Kranavatn” sem finna má ókeypis í næsta krana um allt land.

Sjá einnig: Ferðamenn hvattir til að draga úr plastnotkun og drekka kranavatn

Verkefnið er unnið undir merkjum Inspired by Iceland og sér Íslandsstofa um framkvæmd. Verkefnið er í samstarfi við Umhverfisstofnun og er styrkt að hluta af formennskuáætlun Íslands í Norrænu ráðherranefndinni. Inspired by Iceland er markaðsverkefni í samstarfi stjórnvalda og fyrirtækja og eru helstu aðilar Icelandair, Icelandic og Samtök ferðaþjónustunnar sem fulltrúar fjölda fyrirtækja í ferðaþjónustu.

 
Source: Nútíminn

MULAN trailer kominn út, en hvar er drekinn Mushu og Li Shang?

$
0
0

 

Disney hefur undan farið unnið að því að breyta gömlum teiknimyndum eins og Aladdin og Lion King í bíómyndir. Myndin Mulan þar Yifei Liu er í aðalhlutverki mun koma út á næsta ári en trailer sögunnar um hugrökku stelpuna sem bjargaði Kína er ný kominn út! hægt er að sjá trailerinn hér

Aðdáendur teiknimyndarinnar (1998) og framhalds myndarinnar Mulan 2 (2004) hafa tekið eftir örlitlum breytingum á nýju myndinni. Rauði drekinn Mushu sem spilaði lykilhlutverk í báðum fyrri myndum Mulan er hvergi sjáanlegur í Trailer nýju Mulan myndarinnar né inn á Imdb síðu hennar. Inná Imdb síðu myndarinnar má sjá að enginn karakter er skráður undir nafninu Muchu og heldur ekki sem Kapteinn Li Shang. Li Shang maðurinn sem Mulan átti í ástarsambandi við mun heldur ekki koma við söguna heldur mun nýr maður koma í hans stað hann Chen Honghui sem leikinn er af  Yoson An. 

Söguþráður nýju Mulan myndarinnar er því óljós þar sem hlutverk Mushu og Li Shang voru það stór að erfitt er að halda söguþráðinum eins og hann var án þeirra. Áhugavert verður að sjá hver útkoman verður þar sem framleiðendur Mulan hafa tilkynnt að engin lög verða í myndinni og að hún eigi ekki að vera söngleikja “gaman” eins og svo margar Disney myndir eru heldur mynd sem sýnir merkilegan kvennhermann.

 
Source: Nútíminn

Komið í ljós hverjir leika í íslensku útgáfu nýrrar Lion King myndar –Þorvaldur Davíð snýr aftur sem Simbi

$
0
0

Endurgerð kvikmyndarinnar Lion King kemur í kvikmyndahús í næstu viku. Myndin verður talsett á íslensku en Fréttablaðið birti í gær lista yfir þá leikara sem munu tala inn á myndina á íslensku. Þorvaldur Davíð mun meðal annars snúa aftur sem Simbi en hann talaði einnig fyrir hann í útgáfu myndarinnar frá árinu 1994. Í þetta sinn mun hann leika fullorðinn Simba.

Sjá einnig: Disney endurgerir Lion King og Þorvaldur Davíð er tilbúinn ef umboðsmaðurinn gefur grænt ljós

Stúdíó Sýrland sá um útsetningu myndarinnar á íslensku. Gabríel Máni Kristjánsson fer með hlutverk unga Simba, Þórunn Jenný Qingsu Guðmundsdóttir leikur unga Nölu og Íris Hólm Jónsdóttir fer með hlutverk fullorðinnar Nölu. Lista yfir leikara myndarinnar má sjá á vef Fréttablaðsins en um er að ræða einvala lið leikara.

Þorvaldur Davíð segir í samtali við Fréttablaðið að það sé mikill heiður að fá að taka þátt í talsetningunni af endurgerðinni. Honum hafi þótt vænt um upprunalegu myndina og því rosalega gaman að fá að taka þátt aftur.

„Sér­stak­lega að fá að lesa fyrir í rauninni sama hlut­verk og ég var í þegar ég var yngri en núna sem eldri maður. Og ég vona bara að fólk verði á­nægt með þessa nýju út­gáfu,“ segir Þor­valdur við Fréttablaðið.

 
Source: Nútíminn

Ný tónlist frá Of Monsters and Men í dag – Lagið Wild Roses komið út

$
0
0

Íslenska hljómsveitin Of Monsters and Men sendi frá sér nýtt lag í morgun. Lagið heitir Wild Roses og er annað lagið sem sveitin gefur út af plötunni Fever Dream sem er væntanleg í lok júlí. Hlustaðu á lagið hér að neðan.

Sjá einnig: Óskarsverðlaunahafi hannaði kjól Nönnu í nýju myndbandi Of Monsters and Men

Það er nóg að gera hjá hljómsveitinni um þessar mundir en Of Monsters and Men leggur af stað á tónleikaferðalag í ágúst til þess að kynna plötuna Fever Dream sem kemur út 26. júlí næstkomandi. Hljómsveitin mun ferðast um Bandaríkin, Kanada og Evrópu á ferðalaginu. Sveitin mun þá vera aðalnúmerið á komandi Iceland Airwaves hátíð í Reykjavík.

Aðdáendur sveitarinnar eru gífurlega spenntir fyrir plötunni Fever Dream og hafa beðið spenntir eftir nýju lagi af plötunni en sveitin gaf út lagið Alligator í vor.

Hlustaðu á Wild Roses

 
Source: Nútíminn

Atli Fannar efast um tilvist Rúriks Gíslasonar: „Ótrúlegt að enginn sé búinn að fatta þetta“

$
0
0

Atli Fannar Bjarkason, fyrrum ritstjóri Nútímans, kom með ansi áhugaverða kenningu á Twitter aðgangi sínum í gær. Atli heldur því fram að knattspyrnukappinn Rúrik Gíslason sé ekki til, hann sé einfaldlega karakter úr smiðju Íslandsstofu, hannaður til að laða til landsins ferðamenn frá Suður-Ameríku.

Atli heldur því þá einnig fram að Rúrik sé byggður á hinum kostulega Cosmo Kramer úr sjónvarpsþáttunum Seinfeld. Þegar sönnunargögn Atla eru skoðuð virðist þetta nokkuð augljóst.

 
Source: Nútíminn

Rami Malek neitar að leika arabísku talandi terrorista í nýrri James Bond mynd

$
0
0

 

Hinn 38 ára óskarsverðlauna hafi Rami Malek hefur staðfest hlutverk sitt sem illmennið í nýjustu James Bond myndinni sem kemur út á næsta ári. Malek sagði frá því í viðtali um daginn að eina skilyrði hans til að samþykkja hlutverkið væri að karakterinn hann skyldi ekki vera arabísku talandi og hann myndi aldrei nota trúarbrögð sín og þjóðerni sem afsökun fyrir glæpi sína. Malek verandi frá Egyptalandi vildi einnig hafa það á hreinu að hann væri ekki valinn vegna þess að hann kæmi frá þeim hluta heims sem oft er tengdur við hryðjuverk.

Cary Fukunaga leikstjóri myndarinnar segir að val sitt á Malek hafi ekkert að gera við þjóðerni hans og allt með að gera við hæfileika hans sem leikari. Fukunaga samþykkti skilyrði Malek um karakterinn hans og hefur Malek nú verið formlega ráðinn. Við hlökkum mikið til að sjá hvað þessi magnaði leikari mun gera við hlutverkið.

 
Source: Nútíminn

Megan Rapinoe og Alex Morgan ræddu við Jimmy Kimmel um sigurinn á HM

$
0
0

Knattspyrnustjörnurnar Alex Morgan og Megan Rapinoe sem spiluðu stórt hlutverk í sigri Bandaríska landsliðsins í fótbolta á HM í sumar voru mættar til Jimmy Kimmel í gærkvöldi og ræddu sigurinn á mótinu. Sjáðu myndbandið hér að neðan.

Sjá einnig: Megan Rapinoe segir Trump til syndanna

Þær ræddu meðal annars hvers vegna bandaríska liðið sé eins gott og raun ber vitni, baráttu þeirra fyrir jöfnum launum og sniðgöngu þeirra í heimsókn í Hvíta Húsið til Trump.

Sjáðu myndbandið

 

 
Source: Nútíminn

George Clooney væntanlegur til Íslands fyrir tökur á nýrri Netflix mynd

$
0
0

George Clooney mun taka upp kvikmynd hér á landi í haust. Clooney er væntanlegur til landsins en hann mun gera myndina fyrir Netflix. Hann leikstýrir myndinni og mun einnig leika aðalhlutverkið. Þetta kemur fram á vef RÚV í dag.

Kvikmyndin verður byggð á bókinni Good Morning, Midnight. Tökur á myndinni munu fara fram bæði á Íslandi og á Bretlandi og er reiknað með því að þær hefjist í október. Í frétt RÚV kemur fram að framleiðslufyrirtækið Truenorth sjá um framleiðsluna hér á landi.

Bókin sem myndin er byggð á segir frá tveimur vísindamönnum sem reyna að halda sambandi eftir heimsendi. Annar þeirra er staddur á heimskautasvæðinu en hinn er geimfari að reyna að komast til jarðar. Enska leikkonan Felicity Jones mun einnig leika í myndinni en hún er þekktust fyrir hlutverk sín kvikmyndum á borð við Star Wars: Rogue One og The Theory of Everything.

 
Source: Nútíminn

Facebook er langvinsælasti samfélagsmiðillinn á Íslandi

$
0
0

Facebook er vinsælasti samfélagsmiðillinn á Íslandi en heil 92 prósent þátttakenda í nýrri könnun MMR segjast nota miðilinn reglulega.

Sjá einnig: Einn stofnenda Facebook segir að máttur miðilsins sé orðinn of mikill: „Öllu stjórnað af sama fyrirtækinu“

Snapchat er enn ansi vinsælt en 64 prósent landsmanna segjast nota forritið reglulega. Þá nota 61 prósent Youtube, 51 prósent Spotify og 50 prósent Instagram. Aðeins 2 prósent sögðust ekki nota neina samfélagsmiðla reglulega.

Miðlar á borð við Snapchat og Instagram voru nokkuð vinsælli hjá konum samanborið við karla á meðan Youtube virtist höfða betur til karla en kvenna. Regluleg notkun Snapchat, YouTube, Spotify og Instagram fór minnkandi með auknum aldri.

Nokkurn mun var að sjá á notkun vinsælustu samfélagsmiðlanna eftir stjórnmálaskoðunum. Af stuðningsfólki Flokks fólksins kváðust 98 prósent nota Facebook reglulega en einungis 21 prósent þeirra kváðust nota Spotify reglulega. Stuðningsfólk Sjálfstæðisflokksins reyndist hvað líklegast til að nota Snapchat reglulega og stuðningsfólk Framsóknar, Pírata og Miðflokksins reyndist líklegast til að nota Youtube reglulega. Af stuðningsfólki Viðreisnar kváðust 69 prósent nota Spotify reglulega og 61 prósent stuðningsfólks Pírata sögðust reglulegir notendur Instagram.

Könnunin var framkvæmd dagana 14. til 16. maí 2019 og var heildarfjöldi svarenda 978 einstaklingar, 18 ára og eldri.

 
Source: Nútíminn

Fjölnota eyrnapinnar nýjasta æðið

$
0
0

Last swab er nýtt fyrirtæki sem að hannar fjölnota eyrnapinna með það markmið að minnka einnota eyrnapinnum sem að safnast upp í sjónum okkar. Eyrnapinnar eru flestir úr plasti og við vitum öll að það tekur 1000 ár fyrir plast að leysast upp. Ímyndum okkur að hver og ein manneskja á jörðinni sturti niður einum eyrnapinna á allri sinni lífstíð, það eru meira en 7,5 milljarðar eyrnapinna sem enda í sjónum. Augljóst er þó að hver manneskja sturtar ekki aðeins niður einum eyrnapinna alla sína lífstíð og við getum rétt ímyndað okkar þegar þeir verða 2, 3, 4…. eða miklu fleiri.

Eyrnapinnar menga sjóinn okkar og gera lífverum hans lífið leitt. Myndband var birt af skjaldböku sem var með eyrnapinna fastan í nefinu og hægt er að sjá hversu miklum sársauka litla greyið fann fyrir. fólkið sem fundu skjaldbökuna reyndu að draga pinnann út sem þau gerðu en það gekk hægt og erfitt er að horfa á myndbandið án þess að fá hroll. Hægt er að sjá myndbandið hér

 

Mælum með að næla sér í eitt stykki eða tvö, bjargar sjávardýrunum okkar á meðan þú sparar pening, því þú munt aldrei þurfa að kaupa pakka af eyrnapinnum aftur!

 
Source: Nútíminn

„Við getum ekki setið hjá og látið börnin okkar ein um að mæta þeim heimi sem mun blasa við þeim ef ekkert verður að gert“

$
0
0

Dagfríður Ósk og Óli Steinar eiga tvö börn og eru búsett á Akureyri. Þau hafa nú breytt til í venjum sínum í þeim tilgangi að leggja sitt að mörkum til umhverfisverndar. Fyrir stuttu fóru þau að deila sögu sinni á Instagram undir notendanafninu Hvað getur ein fjölskylda

Dagfríður Ósk Skrifar:

,,Þegar hjón hafa setið sunnudagskvöld eftir sunnudagskvöld yfir heimildaþáttunum “Hvað höfum við gert?” sem sýndir voru á RÚV í vetur, situr eftir lamandi tilfinning sem fylgir þeirri vissu að framtíð jarðarinnar eins og við þekkjum hana og þar með framtíð barna okkar sé í mikilli hættu. Eftir smá vangaveltur og dass af loftlagskvíða tókum við þá ákvörðun að við þyrftum að grípa til aðgerða, við gætum ekki setið hjá og látið börnin okkar ein um að mæta þeim heimi sem mun blasa við þeim ef ekkert verður að gert. 

En þá kom spurningin, hvað getum við gert? Og hvað er það sem skiptir mestu máli að við gerum? Í okkar huga var áherslan á fjöldann, ef að allir breyta sínum venjum, þó ekki sé nema að hluta, erum við komin vel af stað með að hafa áhrif á framtíðina. Þess vegna ákváðum við að leggja áherslu á að skoða, hvað getur ein fjölskylda gert? Úr þessum pælingum varð til instagrammið okkar, “Hvað getur ein fjölskylda” þar sem við deilum þeim breytingum sem við erum að gera á okkar líferni í þágu umhverfisins. 

Að gera stórtækar breytingar á líferni sínu getur virst ógnvekjandi og hálf ógerlegt og þess vegna finnst okkur skipta máli að leggja áherslu á allar litlu breytingarnar. Litlar breytingar sem við gerum án þess að fá þá tilfinningu að við séum að umturna öllu, þessar litlu breytingar hafa nefnilega áhrif í krafti fjöldans.

Þeir sem tileinka sér umhverfisvænan lífstíl notast gjarnan við þrjá megin punkta, á ensku heita þeir, “Reduce, reuse and recycle” sem útleggst á íslensku sem “kaupa minna, endurnýta og endurvinna” og þetta þarf að vera í þessari röð. Mikilvægast er nefnilega að kaupa minna af öllu, svo skiptir máli að endurnýta það sem kemur inná heimilið og loks endurvinna það þegar það hefur lokið líftíma sínum.

Það er ýmislegt sem við höfum lært eftir að við fórum að skoða lífstíl okkar og hverju við gætum breytt, við eigum einnig margt eftir ólært og sumar breytingar taka lengri tíma en aðrar. En mikilvægast er að byrja og vera óhræddur við að prufa sig áfram, við erum ekki að sækjast eftir fullkomnun, enda er hún ekki til, en við leggjum okkur fram um að gera það sem við getum og því langar okkur að deila með ykkur.

Versla notað

Að búa til nýja hluti, hvort sem það er fatnaður, leikföng, húsgögn eða hvað annað  krefst mikils af náttúrunni og því fylgir stórt kolefnisspor. Þess vegna er mjög mikilvægt að reyna eftir fremsta megni að versla það sem okkur vantar notað. Það er hægt í langflestum tilfellum auk þess sem aðgengið að notuðum vörum er alltaf að aukast. Til dæmis er fjöldinn allur af sölusíðum á Facebook, bland.is, svo eru nytjamarkaðir Hertex, Rauða krossins, Fjölsmiðjan og Góði hirðirinn. Verslunum þar sem fólk leigir bás og selur sínar eigin vörur fer einnig fjölgandi og má þar nefna Aftur Nýtt á Akureyri, Barnaloppuna, Trendport og Extraloppuna á Höfuðborgarsvæðinu.

Nota fjölnota í stað einnota

Orðið einnota er notað yfir hluti sem við notum einu sinni og hendum svo í ruslið. Það þýðir að það þurfti orku og efni til að búa til þennan hlut sem við notum svo í örfáar mínútur áður en við losum okkur við hann aftur. Það er átakanlega sorglegt og við leiðum of sjaldan hugann að því. Hvað getum við gert í því? Við getum fækkað einnota hlutunum með því að skipta þeim út fyrir fjölnota.

Að fara með fjölnota poka í búðina er oft fyrsta skrefið í þessum efnum, þá er gott að hafa í huga að taka líka með sér fjölnota pokann þegar farið í aðrar verslanir en matvörubúðina. Nota fjölnota poka fyrir ávexti og grænmeti, eða einfaldlega hafa það laust. Fjölnota kaffimál er einnig mjög góð lausn, að skipta eldhúsrúllunni út fyrir þvottapoka/klúta sem eru svo settir í þvottavél með handklæðunum, að afþakka plaströr á veitingastöðum og kaupa fjölnota stálrör til að nota heima við. Svona mætti lengi telja, en mikilvægt er líka að muna að þó að ákveðinn hlutur sé hugsaður sem einnota þýðir það ekki að það þurfi að nota hann aðeins einu sinni. Til dæmis er hægt að skola plastpoka utan af brauði og morgunkorni og nota aftur og aftur. 

Plastlausar lausnir

Plastið er orðið að miklu vandamáli enda eyðist það ekki heldur brotnar á mjög löngum tíma niður í örsmáar einingar sem kallast plastagnir, þessar plastagnir eru farnar að finnast allstaðar í lífríkinu, allt frá innyflum fiska og fugla yfir í salt og kranavatn. 

Þess vegna er mikilvægt að minnka það plast sem kemur inná heimilið eins mikið og mögulegt er. Plastlausum lausnum fer hratt fjölgandi, og eru þeir hlutir sem við horfum helst eftir að velja í staðinn fyrir plastið búnir til úr bambus, tré eða gleri. Til dæmis má nefna, bambustannbursta, uppþvottabursta úr tré og vatnsbrúsa úr gleri. 

Þá er mikilvægt að skoða umbúðir af þeim hlutum sem við kaupum, forðast plastið eins og við getum og velja frekar t.d. glerílát í stað plastíláta, glerílátin er svo hægt að nota aftur og aftur, þau gefa ekki frá sér nein óæskileg efni og eru frábær, m.a. undir matarafganga. 

Náttúrulegar lausnir fyrir heimilið

Að velta fyrir okkur þeim efnum sem eru í kringum okkur varð óhjákvæmilega fylgifiskur þess að verða umhverfisvænni. Við fórum að hugsa um við hvaða aðstæður efni eins og hreinsiefni, sem eru svo sterk að þau eru með varúðarmerki á, eru búnar til og hvaða áhrif þessi efni hafa á okkur sjálf og lífríki okkar. Þurfum við á þessum efnum að halda í umhverfi okkar og hvað getur komið í staðinn. Við sáum fljótt að það er hægt að þrífa allt á heimilinu mjög vel án þess að nota til þess sterk efni, það eru til margir umhverfisvænni kostir og svo standa matarsódi, edik, uppþvottalögur og salt alltaf fyrir sínu í þrifunum. 

Náttúrulegar lausnir fyrir okkur

Við höfum smátt og smátt skipt öllum húð og hárvörum út fyrir vörur sem innihalda einungis náttúruleg efni, úrvalið af slíkum vörum eru alltaf að aukast. Sumt er hægt að búa til sjálfur, t.d. er mjög einfalt að búa til sinn eigin svitalyktaeyði úr matarsóda, kókosolíu og ilmkjarnaolíu. Þá er orðið töluvert úrval af náttúrulegum kremum sem eru auk þess búin til hér á landi. 

Mikilvægt er að hafa í huga að nýta það sem til er á heimilinu fyrst áður en skipt er yfir í umhverfisvænan varning. Þó getur verið gott að kaupa það sem við viljum að taki við áður en líftími hins gamla klárast því að þá er auðveldara að gera breytinguna þegar að því kemur. 

Þessi upptalning hér að ofan er langt frá því að vera tæmandi en gefur hugmynd um hvaða breytingar hver og einn getur gert inni á sínu heimili jörðinni til góðs.”

– Dagfríður Ósk Gunnarsdóttir

Tékkið á þessari mögnuðu fjölskyldu, þið getið eflaust lært eitt og annað gagnlegt.

View this post on Instagram

Endurnýta er betra en endurvinna 🌱

A post shared by Hvað getur ein fjölskylda gert (@hvadgetureinfjolskylda) on

 
Source: Nútíminn

Bestu vinkonur svara spurningum um hvor aðra í skemmtilegu myndbandi frá kósý

$
0
0

Vinkonurnar Sara og Aníta svöruðu miserfiðum spurningum um hvor aðra í skemmtilegu myndbandi sem vefmiðillinn kósý birti á Youtube í dag. Sjáðu myndbandið hér að neðan.

Sjá einnig: Dæma um það hvaða smjatt sé mest pirrandi: „Jafn pirrandi og þegar þú ert með sólgleraugu á hausnum og hárið flækist í þeim“

Sara og Aníta kynntust í Menntaskóla en urðu bestu vinkonur í Háskóla. Það er töluverð pressa á þær að ná réttum svörum en ef þær klikka á spurningu þurfa þær að taka skot.

Sjáðu myndbandið

 
Source: Nútíminn

„Leyfum strákum að læra og upplifa allar tilfinningar”

$
0
0

Við megum aldrei gleyma að karlmenn þurfa líka á jafnréttisbaráttunni að halda. Karlmenn gráta, geta orðið andlega veikir, eru líka lagðir í einelti og svo margt fleira sem samfélagið hefur verið svo alltof lengi að átta sig á.

Við viljum vekja athygli á instagram síðuna Karlmennskan. Tilgangur þeirra er að frelsa karlmenn undan og styðja við femíníska jafnréttisbaráttu. Munum femínistar geta ekki verið femínistar án þess að styðja jafnréttisbaráttu beggja kynja.

Karlmennskan birti þessa mynd með áhrifamiklum texta á síðu sinni í gær. Hlustum og huggum strákana okkar þeir eiga það líka skilið <3

„Kannski hafa karlmennskuhugmyndirnar svo afdrifarík og alvarleg áhrif á karlmenn að tilfinningagreind þeirra og samkennd fær ekki að þroskast. Þess í stað þróast einstaklingar með bældar tilfinningar og reiðivanda, sem brýst út með ýmsum hætti.
👉Leyfum strákum að læra og upplifa allar tilfinningar. Það mun ekki gera þá að aumingjum. Heldur mjög sennilega gera þá færari í að takast á við lífið.”

 
Source: Nútíminn

Bjarni hefur gefið 45 lítra af blóði

$
0
0

Framkvæmdastjóri Votlendissjóðs, Bjarni Jónsson, náði þeim aðdáunarverða árangri að gefa blóð í hundraðasta skipti á 60 ára afmæli sínu í fyrradag.

Í Fréttablaðinu kemur fram að Bjarni hafi fyrst gefið blóð árið 1978, þegar hann var við nám í Iðnskólanum. Fyrir sex árum síðan setti Bjarni sér svo það markmið að ná hundruðustu blóðgjöfinni á sextugsafmælinu, sem hann og gerði.

Bjarni, sem hvetur alla sem geta til að gefa blóð, hefur nú sett sér það markmið að ná að minnsta kosti 30 blóðgjöfum í viðbót fyrir næsta stórafmæli.

 
Source: Nútíminn

Lashana Lynch mun leika 007 í næstu Bond mynd

$
0
0

Nú hefur verið staðfest að leikkonan Lashana Lynch mun leika breska njósnarann 007 í næstu Bond mynd. Lynch mun þó ekki leika Bond en hún mun taka við hlutverki njósnara 007 sem hefur,eins og frægt er, verið númer James Bond.

Sjá einnig: Rami Malek neitar að leika arabísku talandi hryðjuverkamann í nýrri James Bond mynd

Í nýrri mynd mun Bond segja skilið við njósnadeildina M16 og sögupersóna Lynch mun taka við keflinu. Lashana Lynch vakti athygli fyrir hlutverk sitt í ofurhetjumyndinni Captain Marvel fyrr á þessu ári.

 
Source: Nútíminn

18 bestu og sniðustu tíst vikunnar: „Mamma sjáðu, þarna stendur nafnið þitt!“

$
0
0

Það er komið að hinni vikulegu Twitter samantekt en Íslendingar voru einstaklega fyndnir og sniðugir í vikunni.

 
Source: Nútíminn

Alvarlegt fjórhjólaslys við Geysi

$
0
0

Alvarlegt umferðarslys varð við Geysi í Haukadal um hálf ellefu í morgun. Þyrla Landhelgisgæslunnar var send á vettvang ásamt vettvangsliði frá Flúðum. Þetta kemur fram á Vísi.

Í Facebook-færslu lögreglunnar á Suðurlandi kemur fram að slysið hafi verið fjórhjólaslys og að viðbragðsaðilar séu að sinna slysinu. Einn var fluttur slasaður af vettvangi.

Í frétt RÚV vegna málsins segir að búast megi við umferðartöfum við Geysi þar sem vettvangsinna stendur yfir.

 
Source: Nútíminn
Viewing all 8004 articles
Browse latest View live