Áskorun er ný þáttaröð en fyrsti þáttur kemur á fimmtudaginn í Sjónvarp Símans Premium. Í þáttunum er rætt við afreksfólk í íþróttum sem hefur með einstöku hugarfari og þrautseigju sigrast á ólíkum áskorunum í gegnum lífið, innan vallar og utan.
Fyrsti viðmælandi er knattspyrnuþjálfarinn Elísabet Gunnarsdóttir sem flutti til Svíþjóðar eftir stormasaman feril hér heima og nú segir hún okkur sína sögu.
Greinin Áskorun – Ný þáttaröð! birtist fyrst á Nútíminn.