
Þessi pastaréttur er í algjöru uppáhaldi á mínu heimili þessa dagana og hefur undanfarið verið á matseðlinum að lágmarki einu sinni í viku. Já hann er það góður!
Hráefni:
½ kíló Linguine pasta (1 pakki)
½ kíló risarækjur
4 matskeiðar smjör
5 matskeiðar niðurrifinn parmesan ostur
1 matskeið kraminn hvítlaukur
2 teskeiðar chiliflögur (eða ferskt chili)
2 matskeiðar söxuð steinselja (má sleppa)
1/2 sítróna – notið safann og börkinn
salt og pipar
Aðferð:
1. Sjóðið pastað eftir leiðbeiningum á pakka.
2. Steikið rækjurnar á pönnu í 2 mín, bætið síðan chilli, hvítlauk og smjöri á pönnuna. Leyfið þessu að malla í smástund.
3. Bætið síðan rifna parmesanostinum við ásamt sítrónusafanaum og berkinum. Smá salt og pipar eftir smekk.
4. Allra síðast fer soðna pastað út á pönnuna og blandað vel saman. Skreytið með steinselju og vel af parmesan.